sunnudagur, mars 23, 2008

Plankasport er gott að stunda. Sjálfur get ég gortað mig af því að hafa nú stigið tvisvar á planka þennan veturinn. Það er töluvert meira en hin síðari ár. Á næsta ári er þó hugmyndin að stunda plötusportið meira, það þykir hipp og kúl.

Það tilkynnist svo hérmeð að afmælishátíðin, sem haldin verður 26. apríl næstkomandi, hefur fundið sér stað. Eftir langar og strangar samningaviðræður við veitingamenn í bænum varð Cafe Oliver niðurstaðan. Bjór verður dælt í ótæpilegu magni ofan í gaulandi iður æstra gestanna. Fyrir kenjaskítana sem ekki dreipa á öli verður tilboð á barnum til miðnættis.
Ég held það sé óhætt að segja að flestir, ef ekki allir, þeir sem lesa þetta rit og skilja það í þokkabót, séu velkomnir.

Svona til að hafa þetta skírt og skorinort:

LAUGARDAGINN 26. APRÍL 2008 KL. 20:00 Á CAFE OLIVER

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég þakka gott boð...... en ég verð því miður (fyrir mig allavega) of langt í burtu til að geta mætt. Góða skemmtun :-)

Birkir Örn sagði...

Velkomið,
eruð þið nýgifta parið ekki með einhvern blogg og myndir þarna frá suðurhvelinu?

ORN

Nafnlaus sagði...

Jú, sendi þér linkinn... hvað er e-meillinn þinn? fjb.crew@icelandair.is