mánudagur, nóvember 27, 2006

Alltaf gaman þegar maður sér vídjó af aulum sem eru aulalegri en maður sjálfur

miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Nú er strákurinn kominn með splúnkunýtt og glansandi fínt læknisvottorð uppá að mega fljúga gleraugnalaus. Held væntanlega upp á það með stuttum flugtúr á næstu dögum.

Námskeiðið gengur þokkalega vel, maður er orðinn nett slétt þreyttur á þessu skólaveseni en það sér fyrir endann á þessu því föstudagurinn er sá síðasti. Miðvikudag eftir viku er svo förinni heitið til Frankfurt í Lufthansa skólann þar sem German Precision ræður ríkjum, eða ríður rækjum. Það kemur góðan að þekkja Ómar og vita því hvernig maður tæklar þessa kalla. Svo verður bara að koma í ljós hvort ég flái feitan gölt....

kv.

mánudagur, nóvember 20, 2006

Nú eru Snorri og Helga búin að fjölga sér. Lítil stúlka kom í heiminn í morgun klukkan um hálf níu ef ég man rétt. Mikil gleði og hamingja í fjölskyldunni eins og að vera ber og hef ég það eftir áreiðanlegum heimildum að www.barnaland.is verði alfarið sniðgengið. Myndir munu birtast á lokaðri myndasíðu þeirra skötuhjúa og verður sá hlekkur ekki gefinn upp hér.

kv.

miðvikudagur, nóvember 15, 2006

Nú hef ég ekkert hripað í langan langan tíma. Ég hef bara ekki nennt því.

Brandarinn verður ekki sagður hér. Það er álitamál hvort hann sé fyndinn eða ekki og skiptist fólk algjörlega í tvo hópa: karlmenn og kvennmenn. Konur/stelpur bara sjá ekkert fyndið í þessu... EKKERT! En það er líka bara í góðu lagi, þær hafa svo margt annað að hlægja að.

Bumban er á góðri leið. Gaman frá því að segja að um það leyti sem ég fæ mína fyrstu bumbu þá losnar Helga hans Snorra við sína vonandi á næstu dögum.

Meira er það ekki í bili

kv.

mánudagur, október 30, 2006

Þetta er allt á réttu leiðinni, annað augað enþá svolítið rautt, en það er bara töff því ég get þá notað frasa eins og "Þið hefðuð átt að sjá hinn gaurinn!!!" o.s.frv.
Ég reyndar sé mis vel með augunum. Vinstra hefur vinningin með sjáanlegum mun en ég hef enga nánari útlistun á því.
Ragga frænka átti afmæli um helgina. Hún sýnda afburðar lélegheit með því að fara ekki út á lífið með frænda sínum. Í staðin hitti frændi hennar vinkonur hennar á Vegamótum en tókst með afburðar snilli sinni að móðga og særa hópinn í heild sinni þannig að stór sá á.
Svo vildi til að frændi Röggu lærði brandara fyrr um kvöldið sem honum þótti svo fyndinn að hann sá nauðsin á að segja öllum þennan brandara. Brandarinn er hinsvegar á þann veginn að stelpum finst hann ekki hið minnsta fyndinn. Strákar hinsvegar hlægja sig máttlausa þegar brandarinn er sagður. Frændanum grunaði þetta reyndar en ákvað að sannreina það engu að síður. Við getum orðað það sem svo að útlit er fyrir að vinkonur Röggu hafa ekki mikið álit á frænda hennar eftir atburði helgarinnar.
Það skal tekið fram að frændinn var ekki fullur þó hann hafi verið með Gin og Tónik við hönd, það var einungis til að fæla frá moskítóflugurnar sem voru þrálátar þetta kvöldið.
Frændinn lærði þá dýrmætu leksíu þetta kvöldið að stelpur taka sig allt of alvarlega og móðgast við minnsta tilefni.

kv.

miðvikudagur, október 25, 2006


Eins og sést hafa augun mín litið glaðari dag. Það voru þó ekki slagsmál sem valda þessu heldur Laser augnaðgerð. Ég fékk nóg af gleraugna og linsunotkun og lét slag standa. Búinn að hugsa um þetta í mörg ár og tókst loks með dáleiðslu og hardcore hugalestri að fá foreldra mína í þetta fyrst, svona rétt til að tékka hvort þetta væri ekki í lagi. Það gekk allt vel hjá þeim þannig að ég skelli mér.

Nú er búið að staðfesta bumbunámskeið á mig sexta nóvember. Í tilefni þess birti ég mynd af bumbu:Tek það fram að ég þekki kauða ekki, hef aldrei hitt hann og ég tók myndina ekki!

kveðja

þriðjudagur, október 17, 2006

Kominn heim og enn einusinni má búast við að landinn þurfi að njóta nærveru minnar í dágóðan tíma umfram þrjár vikurnar. Nú er planið hjá vinnuveitandanum að reyna að kenna mér á aðra flugvél. Hvernig það tekst mun tíminn einn leiða í ljós, líkur á því að ég finni upp flugið og segi strákunum hvernig maður fer að þessu.

Þarf sjálfsagt ekki að segja neinum það en það er SKÍTKALT á íslandi.

kv.

laugardagur, október 07, 2006

Jájá, þarna var ég........

En hvað um það. Nú er það helst að frétta að Regga frænka er komin með nýja bloggsíðu, ekki seinna vænna enda komið rúmt ár síðan hún skipti síðast. Maður var farinn að sjá það á henni að þetta var farið að plaga hana. Óviðráðanlegur skjálfti, rauð þrútin augun, útbrot í andliti o.fl. Svona fyrst ég er að tala um Röggu þá er vert að taka það fram að hún er á lausu!

Ritgerðarvinnan gengur svona og svona. Ég fékk ritræpu um daginn og ruddi ritgerðinni upp í tæp 1900 orð. Hún á hinsvegar einungis að vera 1500 þannig að ég þarf eitthvað að laga þetta til. Á auðvelt að skrifa um suma þætti verkefnisins en kem varla orði út um annað. Sérdeilis pirrandi.

Nú lítur út fyrir að ég komist heim mánudaginn eftir rétt rúma vikur, ef allt verður á tíma hjá mér fyrr um daginn. Veðbankar eru bjartsýnir á vasklega framgöngu og on-time performance og segja 1/500.000 að það verði töf. Nokkuð gott það.

Meira var það ekki í bili,

kv

sunnudagur, október 01, 2006


England fagra EEEEEEEEEEEEEEEEEEngland. Eitthvað í þá áttina.

Ég er enþá að hugsa um hversu snilldarlega við Hgrét komum aftan að Simma bakkabróður nýlega. Nú bíð ég bara eftir símtali frá Hrekkjalómafélaginu í Vestmannaeyjum. Læðist þó að mér sá grunur að ég sé hvorki orðinn nógu háaldraður né stórskrítinn til að fá inngöngu í það annars ágæta (EEEEEEEEEEHEM!!!!!!) félag. Má vera að Hjalti uppfylli skilyrðin.

Flug til Zakinthos nú seinnipartinn, hvar í hel/%&##u sem þar er. Einhverstaðar í Gríska eyjaklasanum... hverjum er ekki sama? Þetta er allt sama sullið. Lítil eyja með malbikuðum flugbrautum sem eru misstuttar og fullt fullt af fjöllum í kring, mjög fallegt o.s.frv. Þrátt fyrir það tekst mér að finna upp flugið á hverjum degi og flugstjórarnir koma gapandi úr flugum með mér yfir endalausum, botlausum, óendanlegum o.s.frv. hæfileikum mínum í að framkvæma flug. Ég er nú ekkert mikið fyrir að monta mig af því en annað eins hefur víst ekki sést síðan Wright bræður smíðuðu reiðhjól hér um árið. Ekki það að ég vilji að kjaftasögur spyrjist út, en sagan segir að til standi að sjálfur Ólafur Ragnar Grímsson komi til með að verða þess heiðurs aðnjótandi að hengja Stórkrossstjörnu (já það eiga að vera þrjú S!) hinnar íslensku Fálkaorðu á mig innan skamms fyrir stórfenglegt framlag til flumála og þá einkum og sér í lagi til flugmála á heimsvísu.
En nóg um mig, tölum um flug!


Var í LonDon um daginn, skoðaði nokkra markverða staði s.s. húsið sem er við það að falla um sjálft sig, eggjahúsið, London Tower og síðast en ekki síst Tower Bridge. Myndaserían, Ég-Og-.... heldur því áfram:






Ég-Og-Tower Bridge



Ég-Og-Egglagahúsið


Ég-Og-Húsið sem er við það að falla um sjálft sig


kv

fimmtudagur, september 28, 2006

Hvern haldið þið að ég hafi séð í gær annan en sjálfa hetjuna mína, David Hasselhoff!!! Ég er ekki frá því að goðið hafi jafnvel litið í örskotstundu í mína almennu átt (my general dyrection). Ég ætla aldrei aftur að þvo... ehhh hvað um það

Það er annars að frétta að ég er kominn aftur til Wilmslow, síðasta skiptið svona í bili allavegana. Það virðist ætla vera nóg að gera í fluginu, svona fyrir utan það að ég svitna þessa dagana yfir ritgerðinni góðu sem ég er að hamast við að berja saman. Ef einhver er með góðar hugmyndir varðandi ALA og CFIT þá eru þær vel þegnar

kv

þriðjudagur, september 26, 2006

Moldvarpan em vildi vita hver skeit á hausinn á henni

Dag einn þegar litla moldvarpan stakk hausnum upp úr jörðinni til að sjá hvort sólin væri komin upp, þá gerðist dálítið: (hann var brúnn og sívalur, ekki ósvipaður pylsu - en verst var þó að moldvarpan fékk hann beint á hausinn.)

"Þvílík ósvífni!" æpti moldvarpan. "Hver skeit á hausinn á mér?" (En hún var svo nærsýn, að hún kom ekki auga á sökudólginn.)

"Skeist þú á hausinn á mér?" spurði hún dúfuna sem flaug þar hjá.
"Ég? Nei, ertu frá þér? - Svona geri ég!" svaraði dúfan. (Og plask-slask - hvít og slepjuleg klessa lenti á jörðinni rétt hjá litlu moldvörpunni. Sletturnar gengu upp á hægri fótinn á henni.)

"Skeist þú hausinn á mér?" spurði hún hestinn sem var þarna á beit
"Ég? Nei, ertu frá þér? - Svona geri ég!" svaraði hesturinn. (Og pomp-klomp - fimm stórar og þykkar hrossataðskúlur hlunkuðust niður beint fyrir framan moldvörpuna. Hún varð svo gáttuð að hún settist beint á dindilinn.)

"Skeist þú á hausinn á mér?" spurði hún hérann.
"Ég? Nei, ertu frá þér? Svona geri ég!" svaraði hérinn. (og tatatatatatatata-fimmtán litlar kúlur þyrluðust um eyrun á moldvörpunni. Henni tókst að víkja sér fimlega undan.)

"Skeist þú á hausinn á mér?" spurði hún geitina sem var þarna að spóka sig.
"Ég? Nei, ertu frá þér? - Svona geri ég!" svaraði geitin. (Og klakkedíklakk - heil hrúga af maltbrjóstsykursbrúnum spörðum hrundi niður í grasið. Moldvörpunni þóttu þau næstum falleg."

"Skeist þú á hausinn á mér?" spurði hún grísinn.
"Ég? Nei, ertu frá þér? - Svona geri ég!" Svaraði grísinn (Og slask - lítill, mjúkur, brúnn klessa lenti á jörðinni. Moldvarpan tók fyrir nefið.

"Skituð þið á haus..." spurði moldvarpan, en hætti við þegar hún sá að þetta voru tvær feitar, grænar flugur að háma í sig mat. Loksins, einhver getur hjálpað mér, hugsaði moldvarpan. "Hver skeit á hausinn á mér?" spurði hún snöggt.

"Augnablik," suðuðu flugurnar. Og svo eftir smástund: "Alveg á hreinu: þetta er HUNDUR!"

Loksins vissi litla moldvarpan hver það var sem skeit á hausinn á henni:

DRELLIR, hundur slátrarans!

Eldsnöggt klifraði moldvarpan upp á hundakofann. (og Pling - lítil svört pylsa lenti á miðjum hunds hausnum)

Glöð g ánægð hvarf litla moldvarpan ofan í jörðina á ný.




Nú spyr ég.... er ég með nógu fjörugt ýmyndunarafl til að semja þetta?

kv

miðvikudagur, september 20, 2006

Alltaf gaman að góðu samsæri..... Hver vissi ekki að bandaríkjastjórn stóð á bak við árásirnar á WTC? Að turnarnir féllu ekki vegna þess að vélarnar flugu á þá heldur vegna þess að það var búið að rigga turnana upp með sprengjum út og suður.
Kíkið á þetta
Loose Change Part1
Loose Change Part2
What Happened To WTC Building 7

kv.

sunnudagur, september 17, 2006

Hraustur eins og ég er hristi ég slenið af mér "faster than a hooker gets layed in a whorehouse" eins og sagt er.
Mikið grín og mikið gaman í góðu afmæli hjá Ómari gamla í gær. Engar myndir verða byrtar úr því teiti þar sem engin myndavél var við höndina.

kv

föstudagur, september 15, 2006

Slen og slepja við heimkomu. Ég rétt hristi af mér einhvern viðbjóð degi áður en ég fór út og náði mér svo í eitthvað álíka svona eins og einum degi áður en ég kom heim. Nú er ég rauðeygður með hor, heyrnarlaus á öðru út af hellu og hóstandi. Læknadópið kemur sér vel, Strepsils, Claritin, Pain relief tablets, Zicam nefúði, heitt te og kaffi, ristað brauð með osti, remúlaði og spægipylsu, skyr með undanrennu, naga ginsengrót og gulrætur, Band of Brothers á DVD, banani og eplasaft. Allt vinnur þetta ötulum höndum að því að koma fótunum undir mig aftur ásamt sjálfskipaðri einangrun (svona að mestu leiti).

Það er gott að vera kominn heim......................

kv.

föstudagur, september 08, 2006

Nú er flug búið í bili og stefnan tekin á stórborgina London. Verð þar fram á miðvikudag á stífum kúrsum. Kem svo heim á miðvikudagskvöld rétt í tíma til að sjá Magna vinna Supernova sönglagakeppnina.... eða eitthvað í þá áttina. EINA LEIÐIN!

Haustið er farið að láta á sér kræla hér í konungsveldinu, skilst að það sé suddi og viðbjóður heima. Þetta er allt niðurávið héðan af.... fram í febrúar allavegana

kveðja

sunnudagur, september 03, 2006

Allir eiga sína ljóshærðu stundi, hvort sem menn/konur eru yfir meðallagi greind, eins og ég, eða ekki. Í gær átti ég eina slíka.
Fyrir margt löngu fékk ég viðbjóð og ógeð af matnum sem okkur er boðið uppá í flugvélunum. Sniðugur strákurinn fór því að taka með sér Myoplex próteinhræringa í flug, óhrærða að sjálfsögðu. Var ég nú staddur á jörðinni í Tenerife í gær og hugsaði sem svo að kjörið væri að nota dauðan tíma til að hrista sér einn ískaldan hræring (maður fær vatn í munnin við tilhugsunina). Hristingurinn fer fram eftir kúnstarinnar reglum og geymi ég svo hristingsdolluna mér við hlið þar sem ég hugsaði með mér að kjörið væri að láta klakana sem ég bætti í dallinn kæla hræruna þar til við værum komnir í farflugshæð. Þar sem við erum að klifra í gegnum 24.000 fetin verður mér hugsað til hrærunnar og hveru sárlega svangur ég væri orðinn. Þótti mér þá tilvalið að hrista aðeins betur upp í hrærunni til að hún mundi ná kjör hitastigi og optimum blöndu þegar í efri lög himinhvolfsins væri komið. Þarna gríp ég dunkinn og hefst handa við að hrista. Það sem ég leiði hugan EKKI að á þessum tímapunkti er að dunkurinn er svo þéttur að segja mætti að ég hafi haft sýnishorn loftþrýstings við sjávarmál þarna í höndunum. Þar sem innan veggja vélarinnar vorum við farin að nálgast á þriðja þúsund fetin þá hafði lokið óhemju tendens að skjótast af. Það er einmitt það sem gerðist. Þar sem ég hristi af öllum lífs og sálar kröftum skaust lokið að mestu leiti af og hræran út um allt. Á buxurnar mína, töskuna mína, aðflugskortin, hendurnar, bindið mitt sem ég var ekki einusinni með á mér, QRH-inn (fyrir þá sem vita), meira að segja á gluggann. Hátæknibúnaður flugvélarinnar slapp að öllu leiti enda var ég nógu greindur til að hrista ekki í þá áttina.
Fluffurnar hlógu að mér þar til ég sletti á þær.....

kv

föstudagur, september 01, 2006


Nú er allt farið í hestana. Við kíktum í hesthúsin með Cpt. Lavigne þar sem MERIN hans er ný búin að kasta. Mjög gaman þó við höfum nú ekki komist á bak.
Nú byrjar skólinn hjá mér eftir rétt rúma viku. Álíka þurrt lesefni hefur varla á daga mína drifið síðan ............... mig skortir ímyndunarafl til að ljúka þessari setningu. En allt hefst þetta á endanum og hef ég fulla trú á sjálfum mér.
Meira hef ég ekki að segja í bili.

Þar til næst

kv.

laugardagur, ágúst 26, 2006

Með kaffibolla í annari og Safety Management Systems for Commercial Air Transport Operations - A Guide to Implementation prepared by the Air Transport Operations - Safety Management Group, CAP712 í hinni og tölvuna mína þar á milli sit ég á Best Barista Cafe í Wilmslow. Pullaði flugmanninn á þetta og fann frítt internet. Fyrir þá sem ekki þekkja þá er níska landlæg meðal flumanna þannig að þegar maður leggur á sig að finna eitthvað frítt eða tiltölulega ódýrt þá kallast það að pulla flugmann.
Dæmi: Hjalti flugmaður (engin sérstök ástæða að ég velji þetta nafn) ákveður að skella sér í sólarlandaferð. Hann heldur upp á afmælið sitt nokkrum mánuðum fyrr og kemur því svo fyrir að flugfreyjum frá Icelandair sé boðið. Í afmælinu nælir hann sér í eina fluffu og þau eru saman í dag. Þannig fær hann sólarlandaferð til Krítar á töluvert niðursettu verði því hún fær starfsmannaafslátt. Hann pullaði flugmanninn á þetta!

Annars er snarbiluð geðveiki að gera, sem er mér að skapi.

sunnudagur, ágúst 20, 2006

Íslenska landnámshænan er ekki lengur í útrímingarhættu. Félag Íslensku Landnámshænunnar bjargaði málinu svo ekki mátti minna muna. "Við lá að flís færi í feitann rass" sagði Júlíus Baldursson í fréttatíma sjónvarpsins í kvöld.

Maður dettur ekkert út úr þjóðmálunum þó maður stígi fæti af skerinu. Annað markvert í fréttum er að EGD Group hefur ákveðið að segja skilið við flugrekstur að öllu leiti og fara alfarið út í annað fjármálabrask. Aðspurður hverju sætti vísaði Bjarni Ra. Garðarsson á sinn næstráðanda Guðmund Tó. Sigurðsson. Guðmundur Tó. neitaði alfarið að svara öllum spurningum en vísaði Magnús Hring Sigurjónsson. Magnús sagði að stefnan hefði lengi vel verið að selja flugvélaflota félagsins á uppsprengdu verði og leigja hann svo aftur á niðursettri óverðtryggðri leigu á erlendum vöxtum. Nýlega hafi hinsvegar fundist betri lausn á...... Þarna hringdi síminn hjá Magnúsi og eftir stutt símtal sagðist Magnús ekkert frekar geta tjáð sig um hagi eða stefnumótun félagsins og vísaði á Hjalta Gr. fjölmiðlafulltrúa félagsins. Erfiðlega gekk að ná í Hjalta en eftir að hafa flett honum upp á www.ja.is undir "Maja" fannst númer sem hann ansaði í. Hjalti vildi einungis koma því á framfæri miklum létti yfir að enginn hafi meiðst, það væri höfuðmálið, hann sló svo út með "farinn til Krítar.....QA TA POUME!"

kveðja

fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Buenos jueves

El viaje largo adelante para una distancia corta aunque. Londres es mi enroute intermedio del destino a Manchester. Mi nueva computadora me permite escribir este blog en el consuelo de la conexión libre del internet en el salón de buissnes en el aeropuerto. Tome el cuidado en los días adelante, la bebida puesta a mucho aunque quizás esté emocionando a hacer así.

Brandari:
Un avión quitaba del Aeropuerto de Kennedy. Después que alcanzó una altura de crucero cómoda, el capitán hizo un anuncio sobre el intercomunicador, "Damas y caballeros, esto es su capitán que habla. Bienvenido al Número del Vuelo 293, directo de Nueva York a Los
Angeles. El tiempo es adelante bueno y, por lo tanto, nosotros debemos tener un vuelo liso y tranquilo. ¡Ahora siéntese atrás y se relaja - AH, MI G-D!" El silencio siguió, y después que unos pocos minutos que el capitán regresó en el intercomunicador y dijo, "Damas
y Caballeros, lamento mucho si yo le espanté más temprano; pero, mientras hablaba, el auxiliar de vuelo me trajo un café y roció el café caliente en mi regazo. ¡Usted debe ver la frente de mis pantalones!" Un pasajero en el Entrenador dijo, "Eso no Es nada. ¡El debe
ver la espalda mía!"



KEF-LHR-MAN. Mikið grín, mikið gaman. Útferð hefur hafist og stendur yfir fram í miðjan sept. Fljúga og læra, það er mottó næstu þriggja vikna en í lok útiveru er planið að setjast á skólabekk.

Ég óska öllum ánægjulegra sumarloka, reikna með að þegar ég kem aftur heim verður haustið í algleymingi.

Gangið hægt um gleðinnar dyr á Ómenningarnótt.