þriðjudagur, maí 30, 2006
Nú var ég að skoða myndir af myndasíðu annars afmælisbarnsins og uppúr stendur spurningin: Hvað er Bjarni að horfa á??????
Annars er ég kominn til Manchester þar sem ég mun sitja í viðbragðstöðu næstu dagana, eða allt þar til ég flýg flugvél 5. júní næstkomandi og lýk þar löngu frústrerandi launþegatímabilinu.
kv.
föstudagur, maí 26, 2006
Leitin að mínu innra sjálfi
Þetta byrjaði ekki vel. Lots Of Jokes persónuleikaprófunarsíðan áreiðanlega komst að einfaldri niðurstöðu: Ég er skíthæll (You're an asshole.)
Í stutta stund sló þetta mig alveg út af laginu. Ég velti því fyrir mér að kaupa tvo lítra af Hagen Das, leggjast upp í rúm og horfa á Bold And The Beutiful. Þegar ég hinsvegar áttaði mig á því að Bold And The Beutiful var ekki á dagskrá ákvað að halda leitinni áfram.
Næsta stopp átti ég á Quizbox. Þar tók ég Journey to the Real You prófið sem mun hafa verið hannað af hinum virta þýska Dr. Ubershrinken Von Krakkenhausen. Ég vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða gráta, "old, gray and wrinkled". Ég hef greinilega leitað á röngum stöðum að stóru ástinni.
- You have 1 true friend.
- You will have 1 true love before getting married.
- It is your work ethic that you rest for just a minute.
- Here is the description of your ideal mate: "Old, gray, wrinkled"
- PAMELA ANDERSON is the person you will never get over for the rest of your life.
- You give 75% in a relationship.
Nú var ég komin á fulla ferð og lét ekki svona skítakomment stoppa mig. Oreo Personality Prófið var næst. Listi yfir tíu mismunandi leiðir við að borða Oreo kex. Ég valdi tíunda möguleikann, mér finst ekkert Oreo kex ekkert sérstaklega gott, þýðir það að ég sé vondur einstaklingur?!
10. I don't have a favorite way, I don't like Oreo cookies. You probably come from a rich family, and like to wear nice things, and go to up-scale restaurants. You are particular and fussy about the things you buy, own, and wear. Things have to be just right. You like to be pampered. You are a prima donna. There's just no pleasing you.
Ég vil nú meina að þetta sé tóm þvæla, svona að mestu leiti allavegana en það var bara ein leið að komast að því, nefneilega að halda leitinni áfram. Næst bar mig niður á Málningaklessuprófið eða Inkblot test eins og það kallast á fræðimálinu. Ekki fyrr en eftir að hafa svarað 56 spurningum um hinar ýmsu málningaklessur, hvort mér þætti þær kynæsandi eða hvort þær mynntu mig á kýr í faðmlögum fékk ég að vita að það þyrfti að borga 90 pund til að fá fulla staðfestingu á hversu veill á geði ég væri. Svona til málamynda kom þó úrdráttur úr rapportinu. Ég skil ekki orð af því sem stendur þarna!
your subconscious mind is driven most by Imagination
This means you have a deep desire to use innovative ideas to enhance your life and influence the world around you. This drive influences you far more than you may realize on a conscious level.
Your need to be innovative drives how you look at new opportunities and the kinds of experiences in life you choose to have. On an unconscious level, the reason you may be so driven by imagination is your fear of destruction, the opposite of creation. When you are unable to create due to restrictions imposed by your environment or even ones you unwittingly impose on yourself, do you feel trapped or confined? You may find these feelings of unease only get better when you find another outlet for your imagination.
With such a strong creative orientation, you are willing to entertain a broad spectrum of ideas at any given time. The world is a fuller, richer place because you can contribute new ideas to any experience. Your natural curiosity inspires those around you and encourages them to come up with ideas they wouldn't have thought of without your help.
Ég áttaði mig á því að ég kæmist sjálfsagt aldrei að hinu sanna um mig nema ég fengi sérfræðiálit Dr. Phil á þessu öllu saman. Eftir að hafa skoðað alla mína kinglegu króka og kima komst Dr. Phil að eftirfarandi niðurstöðu:
Others see you as sensible, cautious, careful & practical. They see you as clever, gifted, or talented, but modest. Not a person who makes friends too quickly or easily, but someone who's extremely loyal to friends you do make and who expect the same loyalty in return. Those who really get to know you realize it takes a lot to shake your trust in your friends, but equally that it takes you a long time to get over it if that trust is ever broken.
Svona til að fá lokaniðurstöðu í þessu stóra máli kíkti ég á próf sem er byggt á öðru prófi þróað af Ulle Zang. Þar valdi ég flottustu myndina og var greindur eftirfarandi:
Peaceful Discreet Non Aggressive
You are easy-going yet discreet. You make friends effortlessly, yet enjoy your privacy and independence. You like to get away from it all and be alone from time to time to contemplate the meaning of life and enjoy yourself. You need space, so you escape to beautiful hideaways, but you are not a loner. You are at peace with yourself and the world, and you appreciate life and what this world has to offer.
Nú var ég farinn að skemta mér svo við þetta að það var erfitt að stoppa. Svona undir lokin ákvað ég að athuga hvort ég væri alvöru flugmaður..... nískur! Myvesta er með það allt á hreinu þannig að ég spurði þá félaga:
| " valign="top"> | |
| " valign="top"> People who exhibit a balanced money personality style enjoy making and managing money. They may view budgeting and investing as a game of sorts. Money is viewed as a tool that is used to achieve ones goals. While they often have a budget, Balanced persons do not become overly uncomfortable with the occasional unforeseen expense or in purchasing the occasional luxury item. Balanced persons often feel that diligence, research and effort will reward them in the end. If they invest, Balanced persons tend to have balanced portfolios and are often comfortable seeking advice from financial managers. | |
Svona til að fá einhverja niðurstöðu í málið eftir að hafa lesið allt þetta þá vil ég segja eftirfarandi. Eftir að hafa kastað út öllum óþægilegum greiningum og niðurstöðum sem mér á einhvern hátt líkar ekki við, kemst ég að þeirri niðurstöðu að ég er hið besta grei og mættu margir..... ALLIR skulum við hafa það, taka mig til fyrirmyndar.
Auðmjúk kveðja ;)
mánudagur, maí 22, 2006
Svona síðan ég datt á hjólinu hef ég verið mikið í ræktinni á æfingahjólunum. Þar hef ég verið í stífum æfingum við að pósa á meðan hjólreiðar eru yfirstandandi og gengur bara nokkuð vel. Þarf að bæta mig örlítið í jafnvæginu en þegar það er komið stefni ég beint niður í Nauthólsvíkina í netabolnum.
Nú fer að styttast í að ég þurfi að vinna fyrir laununum mínum. Það hefur ekki gerst síðan ég þurfti að gera það síðast! Planið er að ég fari út á næstu dögum og komi svo aftur heim þegar ég hef lokið útiverunni það skiptið. Þar eftir mun ég taka nokkurra vikna cool-down preíódu til að ná andanum.
kv.
miðvikudagur, maí 17, 2006
þriðjudagur, maí 16, 2006

Nú er strákurinn orðinn úttékkaður á tvö flaggskip hins íslenska flugflota, Yak52 og Yak18t. Síðan það gerðist hef ég fátt annað gert markvert en að fljúga. Fór í gærkveld með Guðmund nokkurn Sigurðsson og svo skutlaði ég Hannesi Greese Monkey Auðunnarsyni til Eyja í dag.
Nú ætla ég að skella mér í morgunleikfimi klukkan 06:30 í fyrramálið. Það er rétt ég er endanlega genginn af göflunum. Það góða við að vakna svona snemma er að maður hefur FULLKOMLEGA löglega afsökun fyrir því að leggja sig aftur í hádeginu eða síðdegis.
ég bið ykkur vel að lifa
sunnudagur, maí 14, 2006
http://thetravisty.com/Stand_Up_Comedy/WMV/Robin_Williams_Golf.htm
Steggjun fór fram í gær, tókst mjög vel til hjá okkur, full dagskrá frá morgni til kvölds. Við fórum meðal annars í M16 sem ég mæli eindregið með fyrir utan það ef þið þjáist af hjólreiðameiðslum, þau geta tekið sig upp á ný og grasserað.
kv
fimmtudagur, maí 11, 2006
Annars er ég bara nokkuð kátur
fimmtudagur, maí 04, 2006
Hinn Háæruverðugi skrifar:
Nú hef ég kosið og gæti kjörstjórn því allt eins lokað kjörstað og talið upp úr kassanum. Hvað ég kaus ætla ég ekki að gefa upp hér en að sjálfsögðu kaus ég rétt, en ekki hvað!
Sjöppenhamn verður það heillin um helgina. Ég ætla að halda upp á átján ára afmælið mitt í Köben með því a skella mér á Radiohead tónleika. Gunni Litli bjallaði í mig fyrir um mánuði síðan, sagðist eiga tvo miða á Radiohead og bauð mér forkaupsrétt á öðrum þeirra. Eftir ýtarlega skoðun á vinnutilhögun minni ákvað ég að nýta mér forkaupsréttarákvæðið og verslaði mér því miða með IceEx til Köben. 25° hiti og sól verður þar um helgina, hvað annað.
Steini greiið. Hann er svo dedicated að það hálfa væri nóg. Nú erum við massabræður að hamast í ræktinni við hvert tækifæri. Það hinsvegar nægir ekki heldur kýs hann að skella sér á Hilton Kúrinn til að ná auknum árangri. Hilton kúrinn, eins og Atkins kúrinn, er hinsvegar mjög umdeildur af þeirri einföldu ástæðu að hann er í raun Búlimía with an edge. Nóg um það í bili.
kveðja
laugardagur, apríl 29, 2006
kv
þriðjudagur, apríl 25, 2006
sunnudagur, apríl 16, 2006
Kem annars heim annað kvöld
kveðja
sunnudagur, apríl 09, 2006
Konan í næsta bás hjálpar okkur að skilja í hvaða röð miðarnir verða spilaðir, ekki veitir af því ég hef ekki spilað Bingó síðan fyrir löngu og þetta er
einhvernvegin allt öðruvísi. Tölurnar glymja í hátalarakerfinu, gamlar konur með sígarettuna í annari og bingóspjaldið í hinni mynna helst á áhorfendur á tennisleik þar sem höfuðið sveiflast milli þess að horfa á skjáinn með tölunni og spjaldið.
Okkar leikur er ekki byrjaður þannig að við bregðum okkur frá til að kaupa bingópenna. Á undan okkur gengur kona með fullan disk af frönskum og einhverju sem lítur út fyrir að vera stórasystir pulsunnar en litli bróðir bjúgans. Einhverskonar saussage er það en ég kemst ekki hjá því að velta því fyrir mér hversu marga daga það hafi legið frammi eftir að það var eldað.
Bingósalurinn er nákvæmlega
eins og ég var búinn að sjá hann fyrir mér. Mikil og sterk lýsing, teppi á gólfinu, ljós bleikur litur ráðandi, básar með fjórum sætum hver og í hverjum bás lítill hátalari þar sem tölurna streyma áfram endalaust. Allir reykjandi, einhvernvegin mistur í salnum en samt ekki, lyktin fer þó ekkert á milli mála. Samt á einhvern sérstakan hátt er staðurinn mjög snyrtilegur.
Við reynum að falla í hópinn, haga okkur eins og lókallinn en enhvernvegin erum við eins og aðkomumenn í kjörbúðinni á Tálknafirði, það sjá það allir að við erum drullu nervus og höfum ekki hugmynd um hvernig við eigum að haga okkur.
Nú er komið að okkar leik. Stjórnandinn er kominn í púltu og þylur upp endalausa bunu af leiðbeiningum og reglum sem
sjálfsagt allir þekkja nema við en allir skilja nema við. Stjórnandinn heldur svo uppi léttu spjalli við sjálfan sig í um 15 sekúntur. Gömlu konurnar horfa á hann aðdáunaraugum og hugsa á milli þess sem þær sjúga á sígarettunum, “bara ef hann væri minn, hann er svo myndalegur, besti bingóstjórnandinn í West Sussex og þó víða væri leitað!”.
“Forty four, all the fours, four and four, sixteen, one and six, one six”, leikurinn er byrjaður, betra að hafa athyglina við það sem máli skiptir. Tveir og hálfur tími líða eins og fingri hafi verið smellt en engan vinning höfðum við uppúr þessu í þetta skiptið.
Þegar ég leggst svo á koddann um kvöldið hugsa ég með mér “Hvað gerði ég í da
g?” Eftir stutta umhugsun var svarið ljóst, jú “Ég spilaði BINGÓ!”
Þetta var í fyrradag. Í gær reyndum við svo fyrir okkur á hundaveðhlaupi niðrí Hove. Öllum tókst okkur að vinna smáræði en komum þó flest út í mínus.
sunnudagur, apríl 02, 2006
Næst fer ég á námskeið 9. apríl, frí þangað til. Þá verður mér kennt að opna hurðir og hoppa út úr flugvéla án þess að hafa landgang, yyyyeeeeeeeeeeeeeeeeeeha.
Búinn að finna mér mótorhjólaleigu inní london, er að spá í að skella mér á hjól í nokkra daga og sjá hvert fákurinn ber mig.
Madrid fór út í veður og vind þegar ekki náðust samningar um viðráðanlegt verð á flugmiðum þangað.
kv
Næst fer ég á námskeið 9. apríl, frí þangað til. Þá verður mér kennt að opna hurðir og hoppa út úr flugvéla án þess að hafa landgang, yyyyeeeeeeeeeeeeeeeeeeha.
Búinn að finna mér mótorhjólaleigu inní london, er að spá í að skella mér á hjól í nokkra daga og sjá hvert fákurinn ber mig.
Madrid fór út í veður og vind þegar ekki náðust samningar um viðráðanlegt verð á flugmiðum þangað.
kv
fimmtudagur, mars 30, 2006
Ekki mikið að frétta annað en að nú er ég útskrifaður í CRM enn eitt skiptið. Frekar rólegt næstu dagana og er ég mikið að spá í að skella mér til Madrid, meira um það síðar.
Góðar líkur á því að ég nái að fljúga eitthvað fyrir mánaðarmótin júní-júlí.
Áætlaðri heimkomu hefur verið seinkað um nokkra daga.
kv.
sunnudagur, mars 26, 2006
Bendi á fyrir alla þá fjölmörgu sem koma til með að vilja hringja í mig á næstu þrem vikum þá er UK símanúmerið mitt hér uppi í hægra horni
kveðja
mánudagur, mars 20, 2006
Kvennmannsleysinu á heimilinu var snarlega kippt í lag nýverið. Ég skellti mér í Blómaval og
verslaði mér Heimilisfrið. Eftir að heim var komið gerði ég þau afdrifaríku afglöp að skíra blómið karlmannsnafninu Kjartan. Mér var svo bent á það af góðri vinkonu að það væri eitthvað skakkt við að blómið bæri karlmannsnafn. Því kippti ég snarlega í liðinn með því að afnefna blómið og vinn nú hörðum höndum að því að finna gott nafn á kellu, allar tillögur eru vel þegnar.Svo er strákurinn bara allur að verða HEL KÖTTAÐUR, enda er tekið svo svaðalega á því í ræktinni að nýr standard hefur verið settur, skilst að WC sé að frjárfesta í þyngri lóðum þessa dagana.
Mikið hefur verið eldað á heimilinu síðan síðast. Í gær tók ég mig til og bauð hjónunum í mat. Er ég alveg sérlega stoltur af eftirréttinum sem ég eldaði frá scratch eins og sagt er á vondu máli. Súkkulaði soufflé var það heillin og tóks svona líka sérlega vel. Ég ætlaði að setja mynd með en hún bara vill ekki koma.
kv.
þriðjudagur, mars 07, 2006
Loks koma myndir af drossíunni. Sý fyrsta er af Steindóri nokkrum meðeiganda þar sem hann stendur stoltur við trjónu gripsins. Proppinn vantar á en það hefur ekki valdið neinum vandamálum enn sem komið er.
Hér ber að líta bensíngjöf og proppskaft.... purrrrrrrrrrr þetta er verklegt......

Mælaborðið í allri sinni fegurð. Skilur einhver rússnesku?

Tinni og Skafti eða Skapti

Það er greinilega margt sem gerist þegar ég er að heiman. Þessi mynd er tekin úr falinni myndavél sem komið var haglega fyrir í fataskápnum í herberginu mínu.
kv.









