sunnudagur, apríl 02, 2006

Mér leiðist og er skapi næst að semja um það ljóð. Í mig vantar hinsvegar alla stuðla og höfuðstafi þannig að ég held að okkur sé öllum best borgið ef ég hreinlega sleppi því.

Næst fer ég á námskeið 9. apríl, frí þangað til. Þá verður mér kennt að opna hurðir og hoppa út úr flugvéla án þess að hafa landgang, yyyyeeeeeeeeeeeeeeeeeeha.

Búinn að finna mér mótorhjólaleigu inní london, er að spá í að skella mér á hjól í nokkra daga og sjá hvert fákurinn ber mig.

Madrid fór út í veður og vind þegar ekki náðust samningar um viðráðanlegt verð á flugmiðum þangað.

kv

Engin ummæli: