fimmtudagur, júní 22, 2006

Ég lýsi megnri óánægju með þann sem kommentaði nafnlaust á minn síðasta póst. Það er ekkert sorglegt við mig, það er langt síðan ég grét síðast og ég mun ekki einusinni viðurkenna að það hafi átt sér stað!

Annars stökk ég upp á Esjuna í morgun á personal best tíma. Má vera að það hafi haft einhver áhrif að þetta var fyrsta skiptið sem ég fór upp en algjör óþarfi að ræða það eitthvað frekar. Nú skora ég á hvern sem þorir að koma með mér, planið er að rölta þarna upp nokkrum sinnum í sumar.

kv

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það var ekki ég í þetta sinn kall minn, að commenta nafnlaust. Ég er líklega oft ruddi - en svona ruddi er ég ekki án þess að segja "djók" á eftir!!

Kvennmaðurinn í horninu er flottur - sómir sér vel í karlabúrinu þínu á Njálsgötunni. Gaman amk að sjá eitthvað "kvennlegt" inni hjá ykkur.

Hafðu það annars gott og vertu sæll sk..hæll.
Helga Dröfn með eyru