fimmtudagur, nóvember 29, 2007

Hvað skal segja? Fór í banka, er að banka.....

Er núna staddur í Medan í Indónesíu og geri þar garðinn frægan í skvassinu. Náði mér í kennara sem tekur mig í bakaríið daglega og hefur gaman að. Svo illa leikinn var ég eftir fyrstu tvö skiptin að ég var óskrifandi á vinstir hendi, sem er óheppilegt því svo lánsamur er ég að vera vinstrhentur (nota ekki örfhentur því það er rangnefni).
Kem sjálfsagt heim í stutt stopp 15. des. Farinn aftur út fyrir jól.

Ef allt fer fram sem horfið þá mun ekki sjást mikið til mín á frónni á næstu mánuðum. Það er allt af yfirlögðu ráði og hið besta mál.

kv.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, það er rétt hjá þér.
Því minna sem þú ert á landinu, því betra...

Nafnlaus sagði...

HEHEHEHE því minna því betra... já ég ætlaði að fara að skrifa. Hvenær hættirðu svo þessu flandri og ferð að setjast að í regninu og fárviðrinu (sem hefur reyndar ekki geysað síðustu 2-4 dagana, en mun hefjast að nýju eftir ca 2 daga!!)

Adios Amigo. Verður gaman að sjá þig þann 16. var það ekki plan?

KRULLUS