fimmtudagur, júní 23, 2005

Það þarf að sjálfsögðu ekki að segja frá því að ég náði bóklega mótorhjólaprófinu með miklum stæl í gærmorgun án þess að hafa lært svo mikið enda fæddur með sérlega góðar og yfirgripsmiklar gáfur. Nú er bara að taka verklegu tímana en ég næ að öllum líkindum ekki að gera það fyrr en ég kem heim næst 13.07.05.

kv.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að hafa náð prófinu drengur...
HD

Nafnlaus sagði...

Já, til hamingju drengur! líst vel á þig! þú rúllar upp þessu verkega mar eftir rúntinn okkar á skelliblöðrunum. Hlakka til að sjá þig í Smörrebröðbjór í júlí.

kv.
Lalli