þriðjudagur, september 20, 2005

Alveg er þetta magnað. Spam á kommentinu. Ég hélt að ég væri búinn að loka á þetta en svo var ekki. Búinn að því núna en það á að virkar þannig að þegar þið finnið hjá ykkur þörf til að skrifa eitthvað uppbyggjandi á kommentið þá þurfið þið að staðfesta með því að skrifa upp einhvern texta sem byrtist á einhverri mynd... skýrir sig vonandi sjálft.

Annars er það að frétta að ég ætti að fá íbúðina stuttu áður en ég fer út næst. Ég kem heim 10 okt en stefnan er að þetta gerist einhverntíman í kringum 26. eða 27. okt. Vegna þess að ég er í kappi við Ómar þá stefni ég á að halda innflutningspartí strax helgina eftir þ.e.a.s. 28. eða 29. okt. Þetta er samt ekki 100% en maður vonar bara það besta.

kv.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábær síða, ég ætla pottþétt að skoða hana aftur

Ég er með síðu um hjólaleigu kíktu á hana:)

HÁLFVITAR

Nafnlaus sagði...

Keppni í hverju? að halda innflutningspartý? Útskýringar takk!

Svía flickan

Nafnlaus sagði...

Í keppni við Ómar, það er nú ekki erfitt!!! ÞAÐ HEFUR TEKIÐ MANNINN RÚMT ÁR AÐ FLYTJA INN Í ÍBÚÐINA SÍNA! Ef þú vinnur ekki Ómarinn þá heiti ég ekki "Seindór"!!!!!!!!