föstudagur, júní 29, 2007

Enn og aftur í Riyadh, tveggja daga stopp. Ætla svosum ekki að eyða mörgum orðum í að segja frá því hversu gaman það er hér en ég hef allavegana verið iðinn við kolann að lesa bók, fara í sólbað, setja upp nýja myndasíðu og svo margt margt fleira.

Nú er það staðfest að ég hyggst nota allt það frí sem ég á inni núna í sumar. Það þýðir að næst þegar ég kem heim mun almenningur ekki losna við mig fyrr en 11 september, eða um það leiti sem ég hef alfarið gleymt hvernig á að sinna vinnuni sem borgar launin mín.
Ég vonast til að bæta úr útileguleysi síðasta sumars og auglýsi eftir fólki í útilegu. Kuglegrillið verður notað til hins ýtrasta og hver veit nema ég máli kanski herbergið mitt (HD!)!!

En mál málanna.... slepjan hefur verið slöpp undanfarið þannig að ég fór með viðskipti mín (ehem) annað. Slöpp tengingin þar sem ég er núna en fleiri myndir munu dælast inn smá saman.
http://www.flickr.com/photos/birkirorn/


kv.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sé þig jeddah í næstu viku.....kv.
eyfi

Nafnlaus sagði...

Ég skal mála :) Anytime :) nefndu stað og stund og ég kem

HD

Nafnlaus sagði...

þetta með að slepjan sé slöpp er bara húmbúkk og vanþakklæti af þinni hálfu!

en jú, þar er myndaalbúmið frekar ónýtt.... lagast á næstu 2-3 árum eða svo.