mánudagur, júlí 24, 2006




















Loksins! Minn tími er kominn! Ég veit það fyrir víst að lengi hafi kollegar mínir hjá ónefndu íslensku flugfélagi litið niður til mín af þeirri einföldu ástæðu að hattur hefur ekki verið hluti af einkennisfatnaði mínum. Nú hef ég fengið uppreisn æru því í morgun barst mér uniform Excel Airways í stórum brúnum pakka. Þar innifalið var hatturinn góði. Hatturinn sem mun gera mig að alvöru flugmanni. Ég reikna fastlega með að smyrja vélinni inn í Dalaman í nótt, fólk mun gráta af gleði þegar það heyrir rödd mína í hátalarakerfi vélarinnar því það VEIT fyrir víst að þar fer alvöru flugmaður með hatt! Ég tók strax eftir 26 nýjum bringuhárum og röddin lækkaði sem nemur fjórum tónstigum, jessssssssssss

kv

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég svitna....

Nafnlaus sagði...

Vúhúú! Til hamingju með hattinn...stórglæsilegur með hann ;)
RAGGA

Nafnlaus sagði...

Enda eiga hárin að vaxa þar sem mjúkt er en ekki þar sem stálið er.