föstudagur, september 08, 2006

Nú er flug búið í bili og stefnan tekin á stórborgina London. Verð þar fram á miðvikudag á stífum kúrsum. Kem svo heim á miðvikudagskvöld rétt í tíma til að sjá Magna vinna Supernova sönglagakeppnina.... eða eitthvað í þá áttina. EINA LEIÐIN!

Haustið er farið að láta á sér kræla hér í konungsveldinu, skilst að það sé suddi og viðbjóður heima. Þetta er allt niðurávið héðan af.... fram í febrúar allavegana

kveðja

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel

Krulluhaus

Nafnlaus sagði...

Þetta er ekki sönglagakeppni!!!!