föstudagur, september 15, 2006

Slen og slepja við heimkomu. Ég rétt hristi af mér einhvern viðbjóð degi áður en ég fór út og náði mér svo í eitthvað álíka svona eins og einum degi áður en ég kom heim. Nú er ég rauðeygður með hor, heyrnarlaus á öðru út af hellu og hóstandi. Læknadópið kemur sér vel, Strepsils, Claritin, Pain relief tablets, Zicam nefúði, heitt te og kaffi, ristað brauð með osti, remúlaði og spægipylsu, skyr með undanrennu, naga ginsengrót og gulrætur, Band of Brothers á DVD, banani og eplasaft. Allt vinnur þetta ötulum höndum að því að koma fótunum undir mig aftur ásamt sjálfskipaðri einangrun (svona að mestu leiti).

Það er gott að vera kominn heim......................

kv.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kallinn hress bara...


HD