þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Nú hef ég verið óduglegur að blogga. Það er orðið þreytt að blogga um það hversu slappur maður er í blogginu en samt sem áður ótrúlegt að fólk virðist lesa þetta.

Þegar ég byrjaði á þessum pósti var ég fullur hugmynda um hvað ég skyldi skrifa. Einhvernvegin hefur samtal á msn og Jay Leno alveg þurkað út þær hugmyndir.

Fer út á fimtudag, kanski fyllist ég andagift þegar út er komið eins og skáldin forðum daga. Ég ætti allavegana að geta sagt einhverjar hressilegar sögur af sjálfum mér í simmanum.... og hver vill ekki lesa svoleiðis???????!!!!!?

Það er eitt sem ég ætla ekki að leggjast út í, eins og bumbubræður Hjalti og Steini eru svo duglegir við, og það er að semja limrur og ferskeytlur(skeitlur) svona til að fylla upp í tómt speis á blogginu hjá sér. Ef út í það fer þá er þrettándinn orðinn skelfilega þunnur.

kv

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það hefur nú oft verið þunnt hjá þér....hvað með brandarana og copy paste af persnónuleikasíðunum haha...

Nafnlaus sagði...

Kannast ekki við að setja frumsamin ljóð á síðuna mína.
HJR