miðvikudagur, nóvember 15, 2006

Nú hef ég ekkert hripað í langan langan tíma. Ég hef bara ekki nennt því.

Brandarinn verður ekki sagður hér. Það er álitamál hvort hann sé fyndinn eða ekki og skiptist fólk algjörlega í tvo hópa: karlmenn og kvennmenn. Konur/stelpur bara sjá ekkert fyndið í þessu... EKKERT! En það er líka bara í góðu lagi, þær hafa svo margt annað að hlægja að.

Bumban er á góðri leið. Gaman frá því að segja að um það leyti sem ég fæ mína fyrstu bumbu þá losnar Helga hans Snorra við sína vonandi á næstu dögum.

Meira er það ekki í bili

kv.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hehe, Helga Dröfn sagði mér brandarann og mér finnst hann ótrúlega fyndinn! Við HD erum kannski bara svona miklir karlmenn í okkur, það væri svo sem ekki í fyrsta skipti sem ýjað er að því við mig a.m.k.
Dagbjört

Nafnlaus sagði...

Nei Dagbjört mín - við erum greinilega með talsvert magn testósteróns í okkur - amk hlýtur brandarahliðin okkar að vera það!!
Hugsa að við höfum báðar fengið að heyra þetta nokkuð oft. T.d tala Lalli, Bibbi og Gunni ekki um mig sem stelpu!! Veit samt ekki hvað ég er þá....

Kv HD