þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Rigningadagur í Buenos í dag. Það er svosum allt í lagi því það gefur manni tækifæri til að safna saman hugsunum sínum og plana síðustu eina og hálfa vikuna hér. Nú þegar búnir að gera fullt en enþá hellingur í boði.
Ég er ekki enþá búinn að finna mér konu hérna þrátt fyrir að verða ástfanginn á hverjum degi, mörgum sinnum á dag en setningin sem verður notuð við rétta tækifærið er komin á hreynt.
Eres tan guapa con florisilla de primavera, eða eitthvað í þá áttina. Þú ert fögur eins og vorblóm þýðir þetta. Ég fann þetta í spænskri frasabók, undir kaflanum clubbing, beint á undan "ertu með smokka" frasanum.

kv.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Koma svo... fleiri myndir af köppunum...
Hjalti

Nafnlaus sagði...

HEHEHEH mikið ertu rjómantískur :)

Þú þarft líka að kunna frasann sem kom á eftir híhíhí...

HD