fimmtudagur, maí 31, 2007

Jahérnahér og MAÐUR LIFANDI!!!

Varla er maður kominn heim í kuldann að líkami manns ákveður að bæta úr. Með hita sígandi í 40 gráðurnar sit ég heima, sultardropar í nefi og almenn aumingjalegheit. Ekki er ég neitt sérlega kátur með ástand mála. Lýsi eftir einhverri mjúkhentri til að strjúka mér um höfuð á meðan ég segi "öööööööööööööööööööööööööööööööööööööööööööööööö, mér líður svo IIIIILLLLLLLLLAAAAAAAAAAAAAA!!!"
Ég er þó ekki af baki dottinn og hugsa mér að ná mér af þessu fyrr en síðar þó alvarlegt sé! Það síðasta sem ég vil þó, er vorkunn!kv.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ræfilstuskan - á ég að koma með kaldan þvottapoka og nudda þetta úr þér? "Með illu skal illt út reka" sagði mér einhver einhvern tímann.

Krulluhaus