mánudagur, september 24, 2007

Nú hefur strákurinn verð að hugleiða það undanfarið að hætta að blogga, hann nennir því ekki lengur enda ekki mikið komið uppúr honum undanfarið!

Það helsta sem ég hef frá að segja núna er sagan af því þegar ég fékk mér Chicken Ravioli í Herbergisþjónustu hér á Albilad. Það væri svosum ekki í frásögur færandi nema kanski fyrir það að það bragðaðist ágætlega á leiðinni inn en virðist ekki ætla að bragðast eins vel á leiðinni út. Stuttur eftir að ég hafði aflokið að glopra því í mig byrjaði maginn að snúast hægt og rólega rangsælist (miðað við aftstöðu mína) afturábak í hringi. Snúningnum fylgdi einstaka ropar sem lyktuðu eins og íþróttaskórnir mínir, sem hafa fengið að safna lykt allt of lengi óáreittir, og bragðaðist eins og æla. Nú sit ég spenntur, skrifa blogg og bíð þess sem verða vill. Krossum fingur og vonum það besta!

Nú, ef verða vildi að ég nenni ekki að blogga meir þá er þó myndasíðan mín opin og verður opin um ókomna framtíð..........

kv.

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vonandi gekk dolluferðin vel - ef hún er búin..

Fá orð eru betri en engin.. koma svo..

KRULLUHAUS

Nafnlaus sagði...

Já segi það nú, hættu þessu rugli og halltu áfram að blogga.

Nafnlaus sagði...

Að vera meðlimur bloggmafíu Íslands er einsog að vera í klíku í U, S and A.

Og þú veist hvað gerist fyrir ex klíkumeðlimi.....

Með öðrum orðum...engin leið að hætta!

Nafnlaus sagði...

ÞAð var einmitt eftir að ég borðaði chickn ravioli á Albilad sem ég gerði stykkið mitt stóra úti á götu í Jeddah...

Sjá lok færslunnar "this could be a ...."
http://www.blog.central.is/hgret//index.php?m=10&y=2006

Nafnlaus sagði...

Þú mátt alls ekki hætta að blogga, heyrirðu það strákur, hvað á daman þá að lesa, bloggið hennar mömmu, ha??

Svona hífðu upp um þig buxurnar og stýttu í lofana, annað hvort er maður í keppnisliðinu eða ekki....

Skál fyrir þér..... Rúna BRúna..

Nafnlaus sagði...

Nei ég mæli með því að þú haldir áfram að blogga.
Og þetta með matinn... þetta er voða svipað og ég lenti í í Danmörku, nema hvað að þá var ég nýbúinn að borða mikið af hvítvíni. Er það ekki Sturla ??!

Nafnlaus sagði...

Vá... ég ætlaði aldrei að geta póstað þessu kommenti hérna útaf þessari "trick" spurningu, (WORD VERIFICATION).... Ég er farinn að halda að ég sé bæði les og litblindur

Hvað er annars gzccdnmm?

Þín Flugríður!

Nafnlaus sagði...

blessaður hættu þessu....