sunnudagur, desember 19, 2004

París

Mættur til París. Flaug örstutt hopp yfir sundið í gær frá Gatwick til Charles De Gaulle. Er staddur á Sofitel Paris sem er á vellinum og ég er með útsýni beint yfir stæðið sem vélinni er lagt. Mér skilst að þetta sé bara tímabundið og eftir áramót verði fundin endanlegri lausn á gistimálim því þetta er víst tveggja ára samningur.
Næsta sem ég veit er að ég flýg á mánudag með engum öðrum en Elvis til Gabon, er þar í einn dag og kem svo til baka á miðvikudag.

Símanúmer á hótelinu er +33 149 19 29 29 og herbergi 466

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

æææ vonandi færðu að vera bara í París - rjómó borg ever (skilst mér!!) Amk auðveldara fyrir þig að skreppa heim - eða heim að skreppa til þín!