sunnudagur, janúar 07, 2007

Lendingar búnar.... heim á morgun (fór úr á föstudag fyrir þá sem ekki vita;) ) og stutt stopp því um leið og skírteinið er komið fer ég í sólina í Bangladesh og Jeddah. Beint þaðan fer ég svo til Suður Ameríku í mánaðar FRÍ.... og veitir ekki af. Beint úr fríinu hef ég hug á að fara beint að vinna aftur eins og gengur og gerist... nema bara með smá stoppi í Portúgal að kíkja á Ómar og frú í vikutíma eða svo. Beint úr vinnu ætla ég svo beint í skólann í London 4. - 6. apríl. Þaðan kem ég svo beint heim.
Þið eruð s.s. laus við mig fram í apríl!!!

Vídjó og ljósmyndir af lendingum koma á næstu dögum.

kv

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skilst að vélin sé rammskökk eftir þetta dæmi hjá ykkur, vélin átti að fara strax á línuna eftir að þið voruð búin, en nú er allt í rugli þar sem það þurfti að senda vélina til Peking í réttingu!!! Smá djók, snilld að þú hafi loks prófað almennilega vél, gradúlera með þetta! Kv. Champinn