fimmtudagur, desember 15, 2005

Nú er ég vegna óviðráðanlegra orsaka staddur í Dubai. Því miður eru hvorki Dubai Hjalti né Arabíu Steini á svæðinu til að taka mig í túr um borgina. Áhöfnin eins og hún leggur sig rölti í bæinn áðan, ég verslaði mér eitt Rolex og eitt Breitling á alveg hreint ótrúlega góðum prís. Þetta er borg sem kemur skemmtilega á óvart.
Ekkert meira að segja í bili, hetjusögur bíða betri tíma....... Þarna var ég í 35000 fetum!!......

kv

2 ummæli:

Champinn sagði...

Fékk skilaboðin frá þér! Á hvaða hóteli ertu ?
Gott mál að vera í Dubai!
Ég verð i Frankfuhrt um jólin og fer svo til Peking og þaðan til Hong Kong, þannig að það gæti verið að maður endi í Jakarta og taki nokkur flug þaðan, vona það alla veganna. Heyrumst, kveðja, Steini.

Nafnlaus sagði...

Ég verð að fá söguna í díteils hetja háloftanna.
HIC